Fara í efni

Dagur gegn einelti

Eineltissamtökin, Samstarfshóður um Vinnuvernd á Ísalnds og Sérsveit gegn einelti hvetja landsmenn að hringja bjöllum um landið og miðin kl. 13:00 í dag gegn einelti og kynferðislegu áreiti

Eineltissamtökin, Samstarfshóður um Vinnuvernd á Ísalnds og Sérsveit gegn einelti hvetja landsmenn að hringja bjöllum um landið og miðin kl. 13:00 í dag gegn einelti og kynferðislegu áreiti

Í þínum sporumVerkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa fyrir degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis,  mennta- og menningarmálaráðuneytis og  velferðarráðuneytis og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum sem kom út í júní 2010.

Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti. Forsætisráðherra er verndari átaksins og munu velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.   Ennfremur eru fjöldi félaga og samtaka aðilar að samningnum.

Við undirritunina verða einnig afhent armbönd sem gerð hafa verið í tilefni dagsins og bera yfirskriftina:  Jákvæð samskipti. Þeim verður í kjölfarið dreift til almennings.

Verkefnastjórnin hvetur alla þá fjölmörgu aðila og samtök, sem starfa á þeim vettvangi sem átakið nær til, til þess að taka höndum saman og helga 8. nóvember baráttunni gegn einelti.  Sérstaklega er þessu beint til leikskóla,  grunn- og framhaldsskóla, félags- og frístundamiðstöðva, auk vinnustaða og stofnana á vegum ríkisins.  Ýmislegt er að hægt að gera í tilefni dagsins, s.s. að halda upp á hann með táknrænum hætti eða beina umræðunni að einelti og afleiðingum þess í samfélaginu.

Í tilefni af baráttudegi gegn einelti þann 8. nóvember verður opnuð heimasíðan http://www.gegneinelti.is/  og þar gefst fólki kostur á að undirrita eftirfarandi sáttmála:

Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti

"Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og allra hópa sem eiga sér hvorki málsvara né sterka rödd. Við munum öll, hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er."

Verkefnisstjórnin vonast til að sem flestir í samfélaginu taki þátt í því að setja umræðuna um einelti í brennidepil þennan dag - málefnið er brýnt og til mikils að vinna ef í sameiningu tekst að koma á þjóðarsáttmála um jákvæð og uppbyggileg samskipti.

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?