Fara í efni

Covid19 - Hertar samkomutakmarkanir hafa tekið gildi í dag 10. nóvember.

Fjöldatakmörkun miðast við 500 manns og grímuskylda þar sem ekki er hægt að virða 1 metra nálægðarreglu. Sjá nánar:

Skylt verður að bera grímu þegar ekki er unnt að virða 1 metra nálægðarreglu, fjöldatakmarkanir verða 500 manns, veitingastöðum með vínveitingaleyfi verður skylt að loka tveimur tímum fyrr en nú. Með notkun hraðprófa verður heimilt að halda viðburði fyrir allt að 1.500 manns. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar aðgerðir samkvæmt tillögum sóttvarnalæknis sem hefur áhyggjur af mikilli fjölgun smita, auknum veikindum og vaxandi álagi á heilbrigðiskerfið. Reglur um grímunotkun taka gildi á morgun (á miðnætti aðfaranótt 6. nóvember) en aðrar breytingar miðvikudaginn 10. nóvember og gilda í fjórar vikur til þriðjudags 8. desember.

Aðgerðirnar í hnotskurn:

Skylt er að bera grímu þegar ekki er unnt að virða 1 metra nálægðarreglu, s.s. í fjölmennum verslunum, almenningssamgöngum og viðlíka. Einnig verður skylt að bera grímu á sitjandi viðburðum.

  • Börn 15 ára og yngri eru undanþegin grímunotkun.
  • Starfsfólki sem veitir einstaklingsbundna þjónustu sem krefst nándar, t.d. hárgreiðslu, nudd og viðlíka, er ekki skylt að bera grímu enda er grímuskylda á viðskiptavinum.
  • Framhaldsskólanemar mega taka niður grímu eftir að sest er í kennslu þótt ekki sé hægt að viðhafa 1 metra nálægðarreglu.

Almennar fjöldatakmarkanir verða 500 manns: Á sitjandi viðburðum er heimilt að víkja frá eins metra nálægðarreglu meðan setið er, að því gefnu að allir beri grímu.

Hraðpróf og skipulagðir viðburðir: Heimilt verður að skipuleggja viðburði fyrir allt að 1.500 manns. Gestum á slíkum viðburðum er skylt, þrátt fyrir hraðpróf, að bera grímu ef ekki er unnt að virða 1 metra nálægðarreglu.

Sérstök heimild gildir áfram fyrir skólaskemmtunum í framhaldsskólum með notkun hraðprófa.

Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru vínveitingar: Opnunartími styttist um 2 klst. og ber að loka kl. 23:00 og rýma staðina fyrir miðnætti. Tekin verður upp að nýju skráningarskylda gesta og skulu vínveitingar bornar til sitjandi gesta.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?