Fara í efni

COVID-19: Aukið svigrúm til kennslu í tónlistarskólum 

Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út nýja reglugerð þar sem dregið hefur verið út takmörkunum á skólastarfi í tónlistarskólum. Sjá nánar: 

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að draga úr takmörkun á skólastarfi í tónlistarskólum og auka þannig svigrúm til tónlistarkennslu. Tónlistarskólum verður heimilt að sinna einstaklingskennslu en halda skal 2 metra reglu milli starfsfólks og nemenda. Hámarksfjöldi verður sambærilegur og í grunnskólum; 25 hjá eldri nemendunum, þ.e. í 8.–10. bekk en 50 hjá yngri nemendum. Tveggja metra reglan gildir um nemendur í 8.–10. bekk en ef víkja þarf frá henni skulu notaðar andlitsgrímur.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn sem koma í tónlistarskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.

Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum. Hún tekur gildi við birtingu og gildir til og með 1. desember.


Sjá frétt á vef stjórnarráðsins:

https://www.stjornarradid.is/default.aspx?pageid=e5cf150d-33a7-11e6-80c7-005056bc217f&newsid=022abe3e-2b39-11eb-8129-005056bc8c60


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?