Fara í efni

Brúðubörn úr brúðusafni Rúnu Gísladóttur

Í  dag fimmtudaginn 10. febrúar opnar Rúna Gísladóttir sýningu á handgerðum postulínsbrúðum í Bókasafni Seltjarnarness. Á sýningunni eru brúður af ýmsum stærðum og gerðum. Rúna hefur unnið postulínsbrúðurnar frá grunni bæði steypt þær í mótum, pússað, málað og gengið frá þeim.

Þóra BryndísÍ dag fimmtudaginn 10. febrúar opnar Rúna Gísladóttir sýningu á handgerðum postulínsbrúðum í Bókasafni Seltjarnarness.

Á sýningunni eru brúður af ýmsum stærðum og gerðum. Rúna hefur unnið postulínsbrúðurnar frá grunni bæði steypt þær í mótum, pússað, málað og gengið frá þeim. Auk þess hefur hún hannað og handunnið fatnað á hverja brúðu fyrir sig. Með því leitast hún við að skapa mismunandi persónur og fær jafnfram útrás fyrir nýjar hugmyndir. Garnið í nýjustu prjónaflíkunum hefur Rúna litað sjálf með jurtum.  

Rúna hóf þessa brúðugerð 1996 eftir að hafa farið á námskeið og hefur síðan búið til fjöldann allan af brúðum og er enn að.

Í Brúðusafni Rúnu eru brúður af ýmsu tagi. Þó að á sýningunni séu aðallega handgerðar postulínsbrúður eru í safninu margar aðrar tegundir brúða. Flestar þeirra eru leikfangabrúður frá mismunandi tímum. Þær elstu rúmlega 100 ára.

Rúna á sér þann draum að geta í framtíðinni opnað brúðusafn sem opið væri almenningi.

Á safnanótt föstudaginn 11. febrúar kl. 19:15 mun Rúna ganga með gestum um sýninguna og svara spurningum.

Sýningin er opin alla virka daga kl. 10 – 19 nema föstudaga kl. 10-17. Lokað um helgar.
Sýningin er opin til 10. mars.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?