Fara í efni

Borun fyrir Hitaveitu Seltjarnarness

Þessi aðgerð mun hafa rask í för með sér fyrir þau fyrirtæki sem starfa við Bygggarða og er nú verið að upplýsa þau um það.

Hitaveita Seltjarnarness þarf að fara í endurborun á einni af holum veitunnar vegna dælubilunar í holu 4 við Bygggarða í mars.

Við að hífa dæluna úr holunni brotnaði dælurörið þannig að dælubúnaðurinn féll niður á 1024 m dýpi, en hann er um 7 tonn á þyngd. 

Ákveðið hefur verið að endurbora nýja holu við hlið holunnar.

Hola 4 var upphaflega boruð árið 1972 í 2025 metra dýpi og hefur í seinni tíð fyrst og fremst verið nýtt sem varahola fyrir veituna. 

Byrjað verður á borverkinu eftir verslunarmannahelgi. Við verkið verður jarðbor notaður og er áætlaður verktími u.þ.b. 2 mánuðir. 

Þessi aðgerð mun hafa rask í för með sér fyrir þau fyrirtæki sem starfa við Bygggarða og er nú verið að upplýsa þau um það.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?