Anna Ólafsdóttir 11 ára og Dagur Þórisson 10 ára tóku við við viðurkenningunni Bókaverðlaun barnanna 2013.
Í gær, miðvikudaginn 27. nóvember tóku þau Anna Ólafsdóttir 11 ára nemandi í Mýrarhúsaskóla og Dagur
Þórisson 10 ára nemandi við sama skóla við viðurkenningunni Bókaverðlaun barnanna 2013 sem er samstarfsverkefni Bókasafns Seltjarnarness og Skólabókasafns Grunnskóla Seltjarnarness.
Það var Sigríður Gunnarsdóttir barnabókavörður í Bókasafni Seltjarnarnesi sem afhenti þeim tvær eftirsóttustu bækurnar, sem valdar höfðu verið á landsvísu, en þátttakendur á Seltjarnarnesi voru 141 talsins.