Tækninefnd kvenna í áhaldafimleikum hjá Alþjóða fimleikasambandinu (FIG) hefur boðið Berglindi Pétursdóttur, kennara við fimleikadeild Gróttu, að dæma á Ólympíuleikunum í Grikklandi en þetta er í fyrsta skiptið sem íslenskur dómari í fimleikum fær boð frá FIG um að dæma á Ólympíuleikum.

Íslendingar hafa ekki átt á fulltrúa í dómarasæti í fimleikum kvenna á Ólympíuleikum áður og er því um tímamót að ræða. Að auki hefur FIG boðið Berglindi að vera yfirdómari á gólfi á Evrópumótinu í áhaldafimleikum kvenna sem fram fer í Hollandi í lok apríl. Þetta er mjög mikill heiður fyrir Berglindi og ótvíræð viðurkenning á hennar dómarastörfum. Staðfestir þetta að hún er komin í hóp fremstu fimleikadómara í heiminum í dag. Sjá nánar á www.fimleikar.is