Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur tekið ákvörðun um að heita á starfsfólk bæjarins sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Áheitin verða 500 kr. á hvern hlaupinn kílómetra per starfsmann. Ágóðinn rennur til Barnaspítala Hringsins
Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur tekið ákvörðun um að heita á starfsfólk bæjarins sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Áheitin verða 500 kr. á hvern hlaupinn kílómetra per starfsmann. Ágóðinn rennur til Barnaspítala Hringsins.
Með þessu framtaki vill bæjarstjórn hvetja starfsfólk Seltjarnarnesbæjar til hreyfingar og hreystis auk þess að styrkja gott málefni.