Fara í efni

Bæjarstjórn samþykkir tillögu SSH að fyrirkomulagi afslátta af þjónustugjöldum leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila í ljósi Covid-19.

Bæjarstjóra var falið að vinna að útfærslu samþykktarinnar og verður á næsta fundi bæjarráðs lagður fram viðauki vegna þeirra aðgerða sem gripið verður til. Aðgerðirnar verða formlega kynntar þegar að þær hafa verið staðfestar

Á bæjarstjórnarfundi miðvikudaginn 25. mars sl. kynnti bæjarstjóri sameiginlega tillögu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (SSH) að fyrirkomulagi afslátta af þjónustugjöldum leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. 


,,Í þeim tilvikum sem þjónusta leik-, grunnskóla og frístundaheimila fellur niður eða skerðist vegna verkfalls, samkomubanns, veikinda eða sóttkvíar starfsmanna eða af öðrum sambærilegum ástæðum verða gjöld fyrir viðkomandi þjónustu leiðrétt í samræmi við hlutfall skerðingarinnar.

  • Í þeim tilvikum sem görn geta ekki nýtt sér þjónustu vegna sóttkvíar eða veikinda verða gjöld leiðrétt hlutfallslega. Ef foreldrar kjósa að nýta sér ekki þjónustu, t.a.m. með vísan til tilmæla yfirvalda um að foreldrar og forráðamenn haldi börnum sínum heima ef kostur er á hið sama við.,
  • Ofangreint nær til þjónustugjalda leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.
  • Ákvörðunin er tímabundin og gildir til loka maí. Endurskoðun fer fram að teknu tilliti til aðstæðna og veðrur fyrirkomulagið auglýst að nýju eigi síðar en 15. Maí n.k.“

Bæjarstjóri upplýsti að á næsta fundi bæjarráðs þriðjudaginn 31. mars yrði lagður fram viðauki vegna þeirra aðgerða sem gripið yrði til. Lagði hún fram drög að þeim viðauka.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að vinna að útfærslu hennar.





Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?