Í dag hefst vorhreinsun í öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. Af því tilefni komu framkvæmdastjórar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu saman á miðju höfuðborgarsvæðisins, nánar tiltekið í Goðalandi 11 í Reykjavík, og tóku til við hin árvissu vorkverk garðeigenda. Tekið var til í beðum, tré snyrt og rusl tínt til. Eigandi garðsins, Guðmundur Einarsson, hafði á orði að hann hefði ekki áður fengið svona öflugan liðsstyrk í garðverkin.
Frá vinstri: Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ,Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavog, Lúðvík Geirsson bæjar-stjóri í Hafnarfirði, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjórinn í Reykjavík og Guðmundur G. Gunnarsson bæjarstjóri á Álftanesi og Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ.
Vorhreinsunin mun standa yfir í viku, það er frá 21.- 29. apríl. Á því tímabili munu starfsmenn sveitarfélaganna leggja garðeigendum lið og fjarlægja greinaafklippur og annan garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk. Jafnframt eru íbúar á höfuðborgarsvæðinu hvattir til að taka til hendinni í sínu nánasta umhverfi, t.d. með því að efna til sameiginlegrar hreinsunar opinna svæða í sinni götu eða sínu hverfi.
Sérstakur hreinsunardagur verður haldin á vegum Umhverfisnefndar Seltjarnarness laugardaginn 6. maí.
Sjá auglýsingu um hreinsunarátak samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 128kb.