Síðustu helgina í ágúst gekk hópur fjallgöngumanna frá Seltjarnarnesbæ, Orkuveitu Reykjavíkur og ráðgjafafyrirtækinu Accenture á Hvannadalshnjúk. Í hópnum voru aðilar sem vinna að hönnun og lagningu ljósleiðarkerfisins á Seltjarnarnesi.
Síðustu helgina í ágúst gekk hópur fjallgöngumanna frá Seltjarnarnesbæ, Orkuveitu Reykjavíkur og ráðgjafafyrirtækinu Accenture á Hvannadalshnjúk. Í hópnum voru aðilar sem vinna að hönnun og lagningu ljósleiðarkerfisins á Seltjarnarnesi. Þrátt fyrir töluverðan vind og þoku á hæsta tindi landsins flögguðu göngumenn fánum fyrirtækjanna og bæjarfélagsins og lögðu ljósleiðarastreng á topp hnjúksins með táknrænum hætti.
Talið er að fjallganga á Hnjúkinn sé ein allra lengsta fjalladagleið í Evrópu en þess má geta að óvíða er hæðarhækkun á einum degi jafnmikil eða um tvö þúsund metrar. Gangan tekur að jafnaði um 15 klukkustundir fram og til baka og nota þarf ísöxi, fjallalínur og mannbrodda. Leiðsögumenn frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum voru með í för en aðstæður voru að mörgu leyti erfiðar. Einn göngumanna féll til að mynda í djúpa jökulsprungu þegar snjóhengja gaf sig en komst upp úr án áfalla.