Ársskýrsla Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2003 er komin út.
Ársskýrsla Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2003 er komin út. Eins og í fyrra er henni dreift inn á hvert heimili á Seltjarnarnesi en það er liður í þeirri stefnu bæjaryfirvalda að auka upplýsingastreymi til bæjarbúa.
Í ársskýrslunni kemur m.a. fram að veltufjárhlutfall bæjarsjóðs hefur sjaldan eða aldrei verið sterkara og styrkist um 80% á milli ára en jafnframt lækka skuldir og skuldbindingar bæjarsjóðs um rúmar 45 mkr. eða um tæp 5%. Rekstrarhagnaður bæjarsjóð vex um tæpar 100 mkr. og sambærilegur árangur er í rekstri samstæðunnar í heild.
Hægt er að nálgast Ársskýrslu Seltjarnarnesbæjar í pdf-formi hér