Kjörskrá Seltjarnarnesbæjar mun liggja frammi, almenningi til sýnis frá 15. september á bæjarskrifstofum Seltjarnarness, Austurströnd 2 á opnunartíma. Kjörfundur á Seltjarnarnesi þann 25. september er frá kl. 9.00 til 22.00 í Valhúsaskóla.
Alþingiskosningar 25. september 2021
Kjörfundur á Seltjarnarnesi er frá kl. 09:00 til kl. 22:00 í Valhúsaskóla við Skólabraut
- Kjörskrá Seltjarnarnesbæjar liggur frammi frá 15. september, almenningi til sýnis, á bæjarskrifstofu Seltjarnarness Austurströnd 2, 1. hæð, á opnunartíma skrifstofunnar.
- Kjörfundur á Seltjarnarnesi þann 25. september 2021, er í Valhúsaskóla við Skólabraut og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
- Kosið er í þremur kjördeildum, eins og verið hefur í undanförnum kosningum.
- Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram hjá sýslumönnum um allt land. Á höfuðborgarsvæðinu fer hún fram í Smáralind og Kringlunni og verður opið alla daga frá kl. 10:00 til 22:00. Á kjördag 25. september nk. verður einungis opið í Smáralind frá kl. 10:00 til 17:00.
- www.kosning.is - Kosningavefur innanríkisráðuneytisins er með ýmsar gagnlegar upplýsingar um kosningarnar.
- Munið eftir persónuskilríkjum
- Aðsetur yfirkjörstjórnar Seltjarnarnesbæjar á kjördag er í Valhúsaskóla.
F.h. yfirkjörstjórnar
Árni Ármann Árnason, formaður