Nálgast má álagningarseðla fasteignagjalda 2023 sem gefnir eru út á rafrænu formi á mínar síður á heimasíðunni og á island.is.
- Álagningarseðlar eru einungis birtir rafrænt og því ekki sendir út á pappírsformi.
- Fasteignagjöldin birtast til innheimtu í heimabanka gjaldanda
- Færa má gjöldin á kreditkort með því að hafa samband við þjónustuver í síma 5959 100.
- Greiðsluseðlar eru ekki sendir út á pappír nema þess sé sérstaklega óskað.
- Gjalddagar fasteignagjaldanna eru tíu talsins, 15. hvers mánaðar frá janúar – október.
Gjaldskrá yfir fasteignagjöld og útsvar má nálgast á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar.
Elli- og örorkulífeyrisþegar:
Við álagningu hefur elli- og örorkulífeyrisþegum verið veitt lækkun eða niðurfelling samkvæmt reglum um viðmiðunarfjárhæð tekna á árinu 2021. Skilyrði lækkunar eða niðurfellingar er að um sé að ræða íbúðarhúsnæði þar sem viðkomandi gjaldandi hefur lögheimili.
100% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur allt að 5.501.768 krónur.
Hjón með heildarárstekjur allt að 7.029.488 krónur.
75% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu frá 5.501.769-5.623.590 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 7.029.489-7.518.973 krónur.
50% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 5.623.591-5.745.413 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 7.518.978-8.008.458 krónur.
25% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 5.745.414-5.868.333 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 8.008.459-8.496.845 krónur.
Nánari upplýsingar:
Allar frekari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið innheimta@seltjarnarnes.is eða í síma 59 59 100.