Fara í efni

Álagning fasteignagjalda 2022

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2022 eru nú aðgengilegir á rafrænu formi á Mínum síðum Seltjarnarnesbæjar og á island.is. Gjalddagar fasteignagjaldanna eru tíu talsins, 15. hvers mánaðar frá janúar – október.

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2022 eru nú aðgengilegir á rafrænu formi á Mínum síðum Seltjarnarnesbæjar og á island.is.

Gjalddagar fasteignagjaldanna eru tíu talsins, 15. hvers mánaðar frá janúar – október.


Vinsamlegast athugið að álagningarseðlar eru einungis sendir út á pappírsformi til þeirra sem fæddir eru 1939 og fyrr. Engir greiðsluseðlar verða sendir nema þess sé sérstaklega óskað.

Fasteignagjöldin birtast til innheimtu í heimabanka gjaldanda, en einnig er hægt að óska eftir því að fá gjöldin færð á kreditkort með því að hafa samband við þjónustuver í síma 59 59 100.

Við álagningu hefur elli- og örorkulífeyrisþegum verið veitt lækkun eða niðurfelling samkvæmt reglum um viðmiðunarfjárhæð tekna á árinu 2020. Skilyrði lækkunar eða niðurfellingar er að um sé að ræða íbúðarhúsnæði þar sem viðkomandi gjaldandi hefur lögheimili.


100% lækkun:

  • Einstaklingar með heildarárstekjur allt að 5.263.650 krónur.
  • Hjón með heildarárstekjur allt að 6.725.250 krónur.

75% lækkun:

  • Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu frá 5.263.651–5.380.200 krónur.
  • Hjón með heildarárstekjur á bilinu 6.725.251-7.193.550 krónur.

50% lækkun:

  • Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 5.380.201-5.496.750 krónur.
  • Hjón með heildarárstekjur á bilinu 7.661.851-8.129.100 krónur.

25% lækkun:

  • Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 5.496.701-5.614.350 krónur.
  • Hjón með heildarárstekjur á bilinu 7.661.851-8.129.100 krónur.


Gjaldskrá yfir fasteignagjöld og útsvar má nálgast hér, á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar.

Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið innheimta@seltjarnarnes.is eða í síma 59 59 100.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?