Fara í efni

Afsláttur af fasteignagjöldum elli- og örorkulífeyrisþega hækkar um 20%

Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur samþykkt að hækka afslátt af fasteignagjöldum elli- og örorkulífeyrisþega um ríflega 20% frá og með 1. janúar 2007.

Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur samþykkt að hækka afslátt af fasteignagjöldum elli- og örorkulífeyrisþega um ríflega 20% frá og með 1. janúar 2007.

Hækkun afsláttarins er annars vegar ætlað að taka mið af verðlagsbreytingum síðasta árs, hækka árlegan afslátt þeirra er njóta og jafnframt stækka hóp þeirra sem njóta afsláttar Seltjarnarnesbæjar af fasteignagjöldum.

Jafnframt er sú nýbreytni tekin upp að ekki er lengur þörf á sérstakri umsókn um afsláttinn heldur reiknast hann sjálfkrafa út við álagningu fasteignagjalda í nýju álagningarkerfi bæjarins.

Sjá nánar um álagningu gjalda fyrir árið 2007.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?