Fara í efni

ÆSÍS hyggst bæta aðstöðu til fimleika á Seltjarnarnesi

Æskulýðs- og íþróttaráð Seltjarnarness samþykkti nýlega að kanna hvaða leiðir eru færar til að koma til móts við óskir fimleikadeildarinnar um bætta aðstöðu til iðkunar íþróttarinnar. Ráðgjöfum bæjarins hefur þegar verið falið að hefja vinnu við mótun tillagna um mögulega stækkun og breytingar á íþróttamiðstöðinni innan núverandi lóðamarka.

Stúlkur í Fimleikadeild GróttuÆskulýðs- og íþróttaráð Seltjarnarness samþykkti nýlega að kanna hvaða leiðir eru færar til að koma til móts við óskir fimleikadeildarinnar um bætta aðstöðu til iðkunar íþróttarinnar. Ráðgjöfum bæjarins hefur þegar verið falið að hefja vinnu við mótun tillagna um mögulega stækkun og breytingar á íþróttamiðstöðinni innan núverandi lóðamarka.

Nokkuð er þó í að ráðist verði í slíkar framkvæmdir en ÆSÍS hefur bent á að Seltjarnarnesbær hafi á undanförnum mánuðum varið umtalsverðum fjárhæðum í endurbætur á sundlaug og byggingu gervigrasvallar við Suðurströnd. Áætluðum framkvæmdum íþróttamannvirkja sem þegar hafi verið ákveðnar sé ekki lokið og sú stefna hafi verið mörkuð að ljúka þeim áður en ráðist verði í aðrar endurbætur á Íþróttamiðstöð Seltjarnarness.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?