Fara í efni

Á vörum allra kvenna sem starfa hjá Seltjarnarnesbæ

Seltjarnarnesbær bauð öllum konum sem starfa hjá bænum í kaffi í gær kl. 15. Ríflega 200 konur mættu og þáðu varagljáa sem keyptur var til stuðnings átakinu Á allra vörum.

Seltjarnarnesbær bauð öllum konum sem starfa hjá bænum í kaffi í gær kl. 15. Ríflega 200 konur mættu og þáðu varagljáa sem keyptur var til stuðnings átakinu Á allra vörum.

Gróa Ásgeirsdóttir og Jónmundur GuðmarssonGróa Ásgeirsdóttir afhendir Jónmundi Guðmarssyni bæjarstjóra fyrsta varagljáann (c) 2008 Ellen Calmon

Gróa Ásgeirsdóttir greindist með krabbamein sl. haust og er meðal þeirra kvenna sem vinna að þessu átaki. Gróa kynnti átakið og naut stuðnings systur sinnar Þóru Ásgeirsdóttur.

Á allra vörum er kynningar- og fjáröflunarátak sem hefur að markmiði að leggja Krabbameinsfélaginu lið við að safna peningum til að koma nýjum tækjum til snemmgreiningar á brjóstakrabbameini sem fyrst í gagnið.

Seltjarnarnesbær styrkir átakið með því að kaupa varagljáa handa öllum konum sem starfa hjá bænum.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?