342. fundur Félagsmálaráðs Seltjarnarness haldinn í Mýrarhúsaskóla eldri, fimmtudaginn 17. apríl 2008 kl. 17:00 – 19:05
Mættir: Berglind Magnúsdóttir, Edda Kjartansdóttir, Pétur Árni Jónsson, Guðrún Edda Haraldsdóttir, Sigrún Hv. Magnúsdóttir, Þorsteinn Sveinsson og Snorri Aðalsteinsson. Einnig sat fundinn Eva Björg Bragadóttir nemi í félagsráðgjöf.
- Trúnaðarmál.
1.1 Trúnaðarmál, fært í trúnaðarmálabók 1. mál
1.2 Trúnaðarmál, fært í trúnaðarmálabók 2. mál
1.3 Trúnaðarmál, fært í trúnaðarmálabók 3. mál
1.4 Trúnaðarmál, fært í trúnaðarmálabók 4. mál
1.5 Trúnaðarmál, fært í trúnaðarmálabók 5. mál
1.6 Trúnaðarmál, fært í trúnaðarmálabók 6. mál
1.7 Trúnaðarmál, fært í trúnaðarmálabók 7. mál
- Fundargerð Þjónustuhóps aldraðra á Seltjarnarnesi dags. 7. apríl 2008 lögð fram.
- Breytingar á reglugerð um húsaleigubætur kynntar.
- Fundargerð samráðshóps um áfengis- og vímuvarnir dags. 6. mars sl. kynnt.
- Úttekt á ferlimálum fatlaðra vísað til félagsmálaráðs, sbr. ákvörðun bæjarstjórnar, dags. 12.3.08. Félagsmálastjóra falið að óska eftir því við fjárhags- og launanefnd að fenginn verði sérfræðingur í ferlimálum fatlaðra til úttektar á aðgengi að opinberum byggingum og þjónustustofnunum bæjarins.
- Fjárhagsaðstoð á Seltjarnarnesi. Eva Björg Bragadóttir nemi í félagsráðgjöf kynnti rannsókn á félagslegri stöðu einstaklinga og áhrif á lengd þjónustutímabils. Rannsóknin nær yfir 5 ára tímabil. Félagsmálaráð vekur athygli bæjarstjórnar á rannsókninni og þá einkum niðurstöðum, s.s. lengd þjónustutímabils.
- Önnur mál.
-
- Aðgengi að Skólabraut 3-5. Félagsmálaráð beinir því til bæjarstjórnar að tryggð verði aðkoma neyðar- og þjónustubíla að húsinu neðanverðu, milli íþróttahúss og Skólabrautar.
- Samþykkt að beina því til skipulagsnefndar að komið verði fyrir bekkjum, miðsvæðis í bænum og inni í hverfum, sem nýst geta öldruðum og öðrum sem þarfnast hvíldar, á gönguferðum.
- Lagt fram bréf leikskólafulltrúa til formanns félagsmálaráðs, dags. 2. apríl 2008
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:05
Berglind Magnúsdóttir (sign), Edda Kjartansdóttir (sign), Pétur Árni Jónsson (sign), Guðrún Edda Haraldsdóttir (sign), Sigrún Hv. Magnúsdóttir (sign), Þorsteinn Sveinsson (sign) og Snorri Aðalsteinsson (sign)