340. fundur Félagsmálaráðs Seltjarnarness haldinn í Mýrarhúsaskóla eldri, fimmtudaginn 14. febrúar 2008 kl. 17:00 – 18:52
Mættir: Berglind Magnúsdóttir, Magnús Margeirsson, Edda Kjartansdóttir, Pétur Árni Jónsson, Ragnar Jónsson, Þorsteinn Sveinsson og Snorri Aðalsteinsson.
- Trúnaðarmál.
1.1 Trúnaðarmál, fært í trúnaðarmálabók 1. mál
- Fundargerð Þjónustuhóps aldraðra á Seltjarnarnesi dags. 4. febrúar 2008 lögð fram.
- Reglur um úthlutun félagslegra leiguíbúða hjá Seltjarnarnesbæ samþykktar. Reglunum vísað til bæjarstjórnar.
- Stefna og framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar kjörtímabilið 2006-2010 lögð fram og samþykkt. Vísað til bæjarstjórnar.
- Fundargerð samráðshóps um áfengis- og vímuvarnir dags. 24. janúar ´08 lögð fram og samþykkt.
- Erindi Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra dags. 5. febrúar 2008 varðandi svæðisáætlanir kynnt.
- Önnur mál
Formaður sagði frá tillögum sem kynntar voru á bæjarstjórnarfundi þann 13. febrúar s.l. þess efnis að sett verði á fót nefnd til að skoða byggingu hjúkrunarheimilis á Seltjarnarnesi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:52
Berglind Magnúsdóttir (sign), Magnús Margeirsson (sign), Edda Kjartansdóttir (sign), Pétur Árni Jónsson (sign), Ragnar Jónsson (sign), Þorsteinn Sveinsson (sign) og Snorri Aðalsteinsson (sign).