Fara í efni

Gallerí Grótta - Sýning

Vatnslitafélagið opnar samsýningu. Sýningin stendur til 7. desember 2024.

Vatnslitafélag Íslands opnar sjöttu árlegu samsýningu sína í Galleríi Gróttu á Eiðistorgi, Seltjarnarnesi, fimmtudaginn 14. nóvember, kl 17:00. Sýningin ber heitið „Árstíðir“.

 

Sagt er að allt sé breytingum háð og fátt beri þess betur vitni en árstíðirnar. Hin stöðuga áminning um framrás tímans speglast vel í árstíðunum fjórum. Mitt í hinum mjúku átökum ljóss og skugga stendur maðurinn og ferðast með vitund sína um lífsins veg og litróf árstíðanna.

 

Alls voru sendar inn um 170 myndir og í dómnefndinni voru þrír listamenn sem hafa unnið með vatnsliti. Dómnefndina skipuðu Konstantin Sterkhov, Rósa Gísladóttir og Tómas Leó Halldórsson. Þeim var falið að velja 62 verk með þemað að leiðarljósi en líka með það að markmiði að verkin mynduðu góða heild og að þau sýndu vel þá fjölbreytni sem vatnsleysanleg efni á pappír geta kallað fram.

Vatnslitafélag Íslands var stofnað í febrúar 2019. Eins og nafnið gefur til kynna er félagið opið öllum sem stunda vatnslitamálun. Félagar eru nú 260 talsins á aldrinum 29 til 98 ára og eru þeir ýmist atvinnumenn eða áhugamenn í listinni. Tilgangur félagsins er að efla stöðu vatnslitamálunar og stuðla að samvinnu félagsmanna á því sviði. Félagið stendur fyrir listviðburðum með fjölbreyttri fræðslu og sýningarhaldi.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?