Fara í efni

Áferð hins óséða sýning í Gallerí Gróttu

Alfa Rós sýnir Áferð hins óséða. Sýningin stendur til 12. október 2024.

Alfa Rós Pétursdóttir er myndlistarkona sem brúar bilið milli samtímalistar og hefðbundins handverks. Í erfðaefni listar hennar eru litir, flæði og form ásamt knýjandi þörf fyrir að kanna hið óþekkta í umhverfinu og sjálfri sér. Verkin samanstanda af blöndu af útsaumi, flosi og öðrum handverksaðferðum.
Alfa útskrifaðist með BA gráðu frá Gerrit Rietveld akademíunni í Amsterdam árið 2011. Eftir útskrift flutti hún aftur til Íslands, vann í hlutastarfi við listina og sýndi verk sín ásamt fullu kennslustarfi auk þess að ljúka MA gráðu í Hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem listamaður frá og með árinu 2018, haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum. Alfa hlaut menningarstyrk frá ASS (American Scandinavian Society) árið 2023 og er skráð hjá New York galleríinu Pen&Brush.
„Í gegnum list mína kanna ég blæbrigði hversdagsleikans, lituð sigrum og mistökum. Daglegt líf sem leysir úr læðingi hugmyndir, tilfinningar og augnablik í tíma og rúmi. Á sama tíma eru verk mín samfellt ferðalag sem þrýstir á mörk og umfaðmar hið óþekkta. Ég leitast við að búa til list sem fer yfir hefðbundin mörk og býður upp á nýtt sjónarhorn á hið kunnuglega, um leið og þau eru tilraun til að kanna hið ófundna í eigin sjálfi og reyna á eigin mörk.
Í gegnum textílinn geri ég tilraunir með nýja tækni og aðferðir. Sköpun mín er lifandi samræða milli áferðar og forma og á rætur í nákvæmri endurtekningu hefðbundinna handverksaðferða sem konur hafa beitt í gegnum aldirnar. Í verkunum má finna áhrif frá mismunandi miðlum s.s. málaralist og bútasaumi en áferð og nánd bjóða áhorfanda að dvelja lengur í hughrifunum, að finna þræðina í flóknu lífi og fegurð þess”.
Alfa Rós
Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins. Síðasti sýningardagur er laugardagurinn 12. okt. nk.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?