Fara í efni

Yfirmatreiðslumaður skólans lofaður fyrir einstakan metnað 

Samsetning matseðla og framleiðsla matar er til fyrirmyndar og í samræmi við útgefin viðmið Embættis landlæknis segir í nýlegri úttekt sem matvæla- og næringarfræðingur vann fyrir Grunnskóla Seltjarnarnesbæjar.
Jóhannes Már Gunnarsson með nemendum grunnskóla

Samsetning matseðla og framleiðsla matar er til fyrirmyndar og í samræmi við útgefin viðmið Embættis landlæknis segir í nýlegri úttekt sem matvæla- og næringarfræðingur vann fyrir Grunnskóla Seltjarnarnesbæjar.  


Í úttektinni, sem unnin var af Berthu Maríu Ársælsdóttur, tekur hún sérstaklega til þess að hversu skólinn gerir skýrar gæðakröfur til birgja með sérpöntunum og að þeir, sem skipt er við, hafi jafnan nákvæmar innihaldslýsingar og yfirlit yfir næringargildi á vörum aðgengilegar á heimasíðum sínum. Í skýrslunni er einnig minnst sérstaklega á þá ánægjulegu þróun að neysla grænmetis hefur aukist talsvert á milli ára.

Þá er vikið að því hve áhugasamur yfirmatreiðslumeistari mötuneytis Grunnskóla Seltjarnarnes, Jóhannes Már Gunnarsson, sé og hversu mikinn metnað hann leggi í eldamennskuna fyrir börnin, en eins og segir í skýrslunni: „Hann ákveður matseðilinn, er í góðum tengslum við birgja, eldar matinn og framreiðir hann sem er gríðarlega mikill kostur. Hann hefur því reynslu af því hvernig matnum er tekið og ef eitthvað hlýtur almennt lélegar viðtökur þá er það ekki lengur á matseðli. Hann er því stöðugt að þróa matseðilinn og leggur sig fram við að fylgjast með því hvernig börnin taka til matar síns og reynir að tala þau inn á að smakka á matnum þótt þeim lítist ekki á réttinn fyrirfram.“

Niðurstaða úttektarinnar er sú að það hljóti að vera vandfundinn betri skólamatur og þótt smekkur manna geti að sjálfsögðu verið misjafn þá eru gæði matarins til fyrirmyndar. 

Úttekt á mötuneyti grunn- og leikskóla Seltjarnarness


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?