Samkvæmt tilkynningu frá Ríkissáttasemjara hefur kjarasamningur verið undirritaður á milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB.
Samkvæmt tilkynningu frá Ríkissáttasemjara hefur kjarasamningur verið undirritaður á milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB, þ.m.t. Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu. Samhliða undirritun kjarasamningsins hefur vinnustöðvunum félaganna gagnvart Sambandi íslenskra sveitarfélaga verið aflýst.