Körfuboltavöllurinn við Valhúsaskóla hefur látið á sjá eftir einn versta vetur í manna minnum. Bæjaryfirvöld leggja sig fram um að hafa leiksvæði fyrir börn örugg
Körfuboltavöllurinn við Valhúsaskóla hefur látið á sjá eftir einn versta vetur í manna minnum. Bæjaryfirvöld leggja sig fram um að hafa leiksvæði fyrir börn örugg en í sumum tilfellum er erfitt að bregðast strax við og á það sérstaklega við um þegar veður eru válynd.
Þegar frost fer úr jörðu verður hafist handa við viðgerð á vellinum við Valhúsaskóla og önnur svæði fyrir börn og ungmenni verða einnig yfirfarin.