Fara í efni

UPPTAKTURINN 2019 - Tónsköpunarverðlaun ungmenna

Ungir semja, fullorðnir flytja! Aftur hefur verið blásið til leiks í Upptaktinum, tónsköpunarverðlaunum 10-15 ára barna og ungmenna, sem er samstarfsverkefni Barnamenningarhátíðar, Hörpu og Listaháskóla. Ungmenni á Seltjarnarnesi eru hvött til þátttöku.

Aftur hefur verið blásið til leiks í Upptaktinum, tónsköpunarverðlaunum barna og ungmenna sem er samstarfsverkefni Barnamenningarhátíðar, Hörpu og Listaháskóla Íslands. Upptakturinn snýst um að öll börn á aldrinum 10-15 ára á höfuðborgarsvæðinu gefst kostur á að setja saman og senda inn tónsmíð eða drög að tónsmíð óháð tónlistarstíl fyrir 13. febrúar nk. 

Seltjarnarnesbær styrkti þátttöku ungmenna á Seltjarnarnesi í fyrsta sinn í fyrra og gerir það aftur nú árið 2019. Þer gaman að segja frá því að Seltirningurinn Hörður Kristinsson, þá 10 ára gamall komst alla leið í lokaúrtakið. Tónsmíð hans var eitt þeirra 12 tónverka sem hlaut tónsköpunarverðlaun Upptaktsins árið 2018. Ennfremur var upplýst að 2-3 önnur ungmenni af Seltjarnarnesi hafi farið langleiðina í lokaúrtak en eins og gengur þurfti því miður að skera niður á lokametrunum. 

Þegar að umsóknarfresti lýkur þann 13. febrúar nk. mun dómnefnd skipuð fagaðilum og atvinnutónlistarmönnum taka til starfa og velja 12-13 verk úr innsendum hugmyndum. Þau verk verða svo fullunnin af ungmennunum sjálfum í vinnustofu í Hörpu með aðstoð tónskálda og fagfólks í tónlist og fer sú vinnustofa fram 5.-15. mars. 

Þriðjudaginn 9. apríl verða tónverkin flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum á metnaðarfullri og glæsilegri tónleikadagskrá í Silfurbergi í Hörpu og eru hluti af Barnamenningarhátíðinni. Öll verkin sem flutt verða á tónleikunum hljóta tónsköpunarverðlaunin Upptaktinn 2019.

Upptakturinn hefur verið haldinn fyrir ungmenni í Reykjavík síðan árið 2012 og er þetta í annað sinn sem öðrum börnum á höfuðborgarsvæðinu gefst kostur á að taka þátt. Seltjarnarnesbær ákvað að börn á Seltjarnarnesi fengju tækifæri til að nýta sér það og er því þátttakandi í þessu verkefni.

Við eigum svo mikið af hæfileikaríkum krökkum hér á Nesinu og því eru foreldrar eindregið hvattir til að vekja athygli sinna barna á Upptaktinum og hvetja þau til þátttöku. Nemendur geta leitað ráða hjá kennurum í tónlistarskólanum og starfsfólkinu í Frístundinni og Selinu sem hafa allar upplýsingar og eru reiðubúin að aðstoða og hvetja.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?