Fara í efni

Sýning Emblu Sigurgeirsdóttur í nýju húsnæði Handverks og hönnunar á Eiðistorgi

Handverk og hönnun opnaði fyrstu sýningu sína í nýju húsnæði þeirra á Eiðistorgi, 18. apríl sl. Þar sýnir Embla Sigurgeirsdóttir keramikhönnuður ný verk sem hún kallar ÞOLMÖRK. Sýningin mun standa til 28. maí

Handverk og hönnun opnaði fyrstu sýningu sína í nýju húsnæði þeirra á Eiðistorgi, 18. apríl sl. Þar sýnir Embla Sigurgeirsdóttir keramikhönnuður ný verk sem hún kallar ÞOLMÖRK. Sýningin mun standa til 28. maí.

Embla útskrifaðist með BA Hons í  keramikhönnun frá University of  Cumbria í Englandi árið 2014, en þar áður stundaði hún tveggja ára nám við Mótun í Myndlistarskólanum í Reykjavík.

Hún er með vinnustofu í Íshúsi Hafnarfjarðar og er meðlimur í listamannafélagi Kaolíns en hún rekur það gallerí ásamt 7 öðrum keramikerum á Skólavörðustíg 5 í Reykjavík.

Á sýningu hennar Þolmörk sýnir hún hvernig hún hefur leyft sér að taka mistök sín skrefinu lengra og skoðar þolmörk efnis og burðar.

Hún brýtur verk sín niður að grunni til þess að reisa þau upp aftur með nýja sýn og þekkingu á eigin ferðalagi sem ávannst með því að taka efni og aðferðir alla leið að endamörkum.

Handverk og hönnun er sjálfseignarstofnunin sem er rekin með stuðningi Mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Meginmarkmið Handverks og Hönnunar er að stuðla að eflingu handverks, listiðnaðar og hönnunar, og að auka skilning almennt á menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks, hönnunar og listiðnaðar með fjölbreyttri kynningarstarfsemi. Sjá nánar á heimasíðu Handverks og hönnunar http://www.handverkoghonnun.is

Embla sigurgeirsd´totir, Ásgerður Halldórsdóttir og Sunneva Hafsteinsdóttir

Embla Sigurgeirsdóttir, Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri og Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar við opnun sýningarinnar ÞOLMÖRK.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?