Fara í efni

Sumarstörf hjá Seltjarnarnesbæ

Seltjarnarnesbær vill ráða ungt fólk til sumarstarfa 18 ára og eldri (fædd 1999 og eldri). Opnað hefur verið fyrir umsóknir um störf. Opnað verður fyrir umsóknir í Vinnuskólann fyrir 14 -17 ára (fædd 2000-2003) 22. mars nk
Seltjarnarnesbær vill ráða ungt fólk til sumarstarfa 18 ára og eldri (fædd 1999 og eldri). 

Um er að ræða almenn garðyrkjustörf, verkamannastörf, skapandi sumarstörf og ýmis afleysingastörf. Einnig er auglýst eftir ungmennum 20 ára og eldri (1997 og eldri) í störf flokkstjóra og leiðbeinenda. Skilyrði fyrir ráðningu er að eiga lögheimili á Seltjarnarnesi. Opnað hefur verið fyrir umsóknir um störf.  Sjá nánar „Störf í boði - Sumarstörf

Umsóknarfrestur er til 31. mars 2017

Vinnuskóli 8. – 10. bekkur og 17 ára f. 2000. 

Vinnutími Vinnuskóla verða 7 stundir á dag, 4 daga vikunnar fyrir umsækjendur sem fæddir eru 2000 og 2001. Vinnutími verða 3,5 stundir á dag, 4 daga vikunnar fyrir umsækjendur sem fæddir eru 2002 og 2003. 
Ekki er unnið á föstudögum. Vinnutímabil Vinnuskólans er frá 12. júní til 27. júlí

Opnað verður fyrir umsóknir 22. mars nk.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2017

Vinnuskólinn verður settur 8. júní kl. 11:00 í Valhúsaskóla



Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?