Fara í efni

Skipt um gervigras - Umferð raskast

Mánudaginn 23. maí hefjast framkvæmdir á Vivaldi vellinum, en skipt verður um gervigras á bæði æfinga- og keppnisvellinum.
Mánudaginn 23. maí hefjast framkvæmdir á Vivaldi vellinum, en skipt verður um gervigras á bæði æfinga- og keppnisvellinum.  Framkvæmdir munu standa yfir í liðlega sex vikur en verkefninu á að ljúka í byrjun júlí. Athafnasvæði verður girt af á bílastæði við sundlaugina en við það mun bílastæðum fækka nokkuð til skamms tíma. Benda má á stæði við leiksskólana sem hægt er að notast á við, auk stæða við Valhúsaskóla og tónlistarskólann (frá Kirkjubraut). Seltirningar eru einnig hvattir til að ganga eða hjóla enda kjöraðstæður til þess yfir hásumarið. Það er ósk bæjaryfirvalda og framkvæmdaraðila að Seltirningar sýni verkefninu þolinmæði, en markmiðið með þeim er að skapa heilsusamlegri æfingaaðstæður. 

Framkvæmdirnar felast í því að fyrst verður allt gúmmíkurl ryksugað upp af vellinum og sett í stóra sekki. Því næst verður núverandi gervigrasmotta bútuð í sundur og rúllað upp í rúllur. Í framhaldinu kemur nýtt fjaðurlag og gervigrasmotta í gámum hverjum á eftir öðrum eftir því sem verkinu fram vindur. Að lokum verður ljósgrátt innfylliefni sett yfir gervigrasið, svokallað iðnaðargúmmí, sem er t.d. notað innan í þvottavélum og þurrkurum. Það kemur í stað dekkjakurlsins (SBR gúmmísins), sem mikil umræða hefur verið um síðustu misseri og er enn á flestum gervigrasvöllum landsins.

Ljóst er að mikið rask verður á allri starfsemi  knattspyrnudeildar Gróttu í júní af þessum sökum. Tímasetning var valin í samráði við forráðamenn yngri flokka og meistaraflokks. Ekki var talið ráðlegt að hefjast handa fyrr í vor né síðar í haust þar sem veðurfar skiptir afar miklu máli í svona framkvæmd. Á sama tíma mun Evrópukeppnin í knattspynu standa sem hæst. Meistaraflokkur mun fá aðgengi að FRAM vellinum á meðan og íþróttahúsið, sparkvellir, Valhúsavöllur og aðrir grasbalar bæjarins verða fullnýttir af yngri kynslóðinni á meðan. Þess má geta að áætlað er að skipta út svörtu SBR gúmmíi sem er á sparkvöllum bæjarins í leiðinni, og mun það verkefni taka fljótt af.
Það er fyrirtækið Metatron sem annast framkvæmdina en umsjónaraðili er VSÓ ráðgjöf.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?