Fara í efni

Seltjarnarnes skorar hæst bæjarfélaga

Á Seltjarnarnesi eru 96% íbúa ánægðir með þjónustu við barnafjölskyldur í bæjarfélaginu, samkvæmt árlegri þjónustukönnun sem Gallup gerir meðal sveitarfélaga. Bærinn fær hæstu einkunnina meðal sveitarfélaganna, sem gefin er, þ.e. 4,2 af 5 mögulegum.

SeltjarnarnesÁ Seltjarnarnesi eru 96% íbúa ánægðir með þjónustu við barnafjölskyldur í bæjarfélaginu, samkvæmt árlegri þjónustukönnun sem Gallup gerir meðal sveitarfélaga. Bærinn fær hæstu einkunnina meðal sveitarfélaganna, sem gefin er, þ.e. 4,2 af 5 mögulegum. 

Þjónusta Seltjarnarness á heildina litið út frá reynslu og áliti íbúa nýtur verðskuldaðrar viðurkenningar en fjórða árið í röð er Seltjarnarnesbær með hæsta stigafjölda meðal bæjarfélaga landsins og efst á listanum á þessu ári. Á heildina litið er Seltjarnarnesbær efst eða mjög ofarlega í öllum þáttum könnunarinnar sem spurt var út í og á metið í sjö þeirra.

Þessi jákvæða niðurstaða undirstrikar jákvætt viðhorf bæjarbúa til samfélagsþjónustunnar og er starfsfólki og stjórnendum bæjarins hvatning til að halda áfram á sömu braut. 

Gæði umhverfis í hávegum haft
Það kemur ef til vill ekki á óvart en Seltjarnarnesbær er efst stiga meðal sveitarfélaganna þegar kemur að gæðum umhverfis og er þar með hæstu einkunn á landsvísu fjórða árið í röð. Íbúar eru mjög ánægðir með íbúafundi sem verið hafa vegna skipulagsmála undanfarin ár og lýsa  ánægju sinni með skipulagsmál bæjarfélagsins sem fer vaxandi á milli ára. 

Menningarumhverfi
Íbúar Seltjarnarness eru ánægðastir landsmanna með menningarmálin í bæjarfélaginu, en aukin áhersla hefur verið lögð á þann málaflokk undanfarin ár með jákvæðum árangri. Ný afstaðin menningarhátíð þar sem yfir fjögur þúsund manns sóttu viðburði sýnir vel samhug bæjarbúa á slíkum viðburðum.

Eldri borgarar una hag sínum vel
Ánægja eldri Seltirninga með þjónustu bæjarins endurspeglar áherslu í stjórnun þessa málaflokks en mikið kapp hefur verið lagt á að skipuleggja nærþjónustu við aldraða í samráði við þá sjálfa með það að markmiði að þeir eigi þess kost að búa sem lengst á eigin heimili. Það samræmist einnig yfirlýstri stefnu félagasamtaka eldri borgara.

Leik og grunnskóli í fyrsta sæti yfir landið
Ánægja barna- og fjölskyldufólks eykst og einkunnagjöf er jafnan há þegar kemur að þjónustu bæjarins við barnafjölskyldur. Íbúar Seltjarnarness eru ánægðastir landsmanna með þjónustu grunnskólans og þar kemur samvinna kennara og foreldra varðandi nýlega mótað læsisverkefni mjög sterkt inn, ásamt samvinnu grunnskólans við leik- og tónlistarskóla. Fram kemur að um 85% íbúa Seltjarnarness  eru ánægðir með þjónustu grunnskóla bæjarins og 83% eru ánægðir með leikskólann. Seltjarnarnesbær hefur lagt áherslu á að Nesið sé leiðandi í skóla-, æskulýðs- og íþróttastarfi á landsvísu og leggur áherslu á jöfn tækifæri, árangur og vellíðan, sem endurspeglast í niðurstöðum könnunar Gallup.

Aðstaða til íþróttaiðkunar fyrsta flokks
Ánægja bæjarbúa á Seltjarnarnesi eykst enn frekar á milli ára þegar kemur að aðstöðu til íþróttaiðkunar í sveitarfélaginu. Niðurstöður könnunarinnar sýna að Seltjarnarnes skipar þar efsta sæti meðal þátttakenda í sveitarfélögum landsins, 90% íbúa eru ánægðir með aðstöðu og samstarf við bæjaryfirvalda við íþróttahreyfinguna.

Gott samstarf, betra samfélag
Bæjarstjórn og starfsmenn bæjarfélagsins leggja sig fram um að hlusta eftir hvaða þjónusta skiptir máli fyrir bæjarbúa. Að baki þeirri aðferðafræði liggur sú sannfæring okkar að samstarfið skili sér í betra samfélagi og hagkvæmari rekstri.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?