Fara í efni

Seltjarnarnes - Draumar á Jónsmessu

Hin árlega Jónsmessuhátíð á Seltjarnarnesi fer fram mánudaginn 24. júní kl. 18 - 20

Jónsmessa, Draumar á Jónsmessu, myndEins og mönnum er kunnugt um er Jónsmessunótt ein af mögnuðustu nóttum ársins. Henni fylgir ýmis konar náttúrutrú, meðal annars að kýr tali og selir fari úr hömum sínum. Þessa nótt á að vera gott að leita töfragrasa og náttúrusteina og eins þykir Jónsmessudöggin heilnæm til lækninga. Alls þessa og enn fleira eiga gestir nú kost á að njóta í árlegri Jónsmessuhátíð á Seltjarnarnesi sem fram fer mánudaginn 24. júní kl. 18 - 20 og ber yfirskriftina Draumar á Jónsmessu. Hátíðin hefst og lýkur við safnhúsið sem áður var fyrirhugað Lækningaminjasafn og stendur við Nesstofu. Skammt þar frá er opinn fornleifauppgröftur sem Lóa Júlía Antonsdóttir meistaranemi í fornleifafræði mun rýna í útskýra, en hún er ein þeirra sem komið hefur að verkefninu. Þar verður unnt að skyggnast inn í fortíð og vistarverur genginna Seltirninga og ef til vill verða dregnir fram forvitnilegir munir frá fyrri tíð. Tveir landskunnir Seltirningar þau Eva María Jónsdóttir dagskrárgerðarmaður og Jóhann G. Jóhannsson leikari taka þátt í hátíðinni með frásögnum og fróðleik sem fær hárin til að rísa og hreyfa duglega við ímyndunaraflinu. Farið verður í stutta göngu og fjölskyldan sameinast í ratleik þar sem töfrajurtir og töfrasteinar leika stórt hlutverk en þessari tveggja tíma fjölskylduhátíð lýkur með snarkandi varðeldi, harmonikkuleik, söng og ljúfum veitingum í boði Hitaveitu Seltjarnarness. Dagskrá


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?