Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna fyrir allt landið vegna aftaka¬veðurs á morgun, föstudag 14. febrúar.
Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið frá kl. 7:00 til 11:00 í fyrramálið sem þýðir að fólk á ekki að vera á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Svo tekur appelsínugul veðurviðvörun við frá kl 11:00 til 15:00.
Í neyðartilvikum er fólki bent á að hringja strax í 112 og neyðarvakt bæjarins mun svara í síma 897 0005.
ATHUGIÐ! Reglulegt skólahald fellur niður en leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun fyrir fólk sem þarf nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda – það er fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og björgunarsveitarútköllum.
Veðrið gengur niður eftir kl. 15 samkvæmt spá sem þýðir að ýmis þjónusta raskast eða fellur niður í fyrramálið og jafnvel allan daginn.
Almennt skólahald fellur niður og allar stofnanir Seltjarnarnesbæjar verða lokaðar sem og félags- og tómstundastarf.
Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu verða lokaðar en opna kl. 15
Frístundaheimili opna þegar viðvörunum lýkur. Eins og staðan er núna er appelsínugul viðvörun í gildi til kl. 15:00
Fólk er hvatt til þess að halda sig heima í fyrramálið og fylgjast vel með tilkynningum frá almannavörnum í fjölmiðlum.
Samkvæmt spám á veður að ganga niður eftir hádegi og verður hægt að vera á ferðinni eftir kl. 15 að öllu óbreyttu.
Staðan verður endurmetin í fyrramálið.
Frekari upplýsingar um veðurviðvaranir á síðu Veðurstofunnar.