Fara í efni

Öruggt Skjól

„Við leggjum áherslu á að starfið sé skipulagt þar sem starfsmenn og börn leitist við að móta faglegt, gott og heimilislegt andrúmsloft í skjólinu sem einkennist af virðingu og leikgleði“, segir Rut Hellenar, forstöðukona Skólaskjóls Grunnskóla Seltjarnarness
„Við leggjum áherslu á að starfið sé skipulagt þar sem starfsmenn og börn leitist við að móta faglegt, gott og heimilislegt andrúmsloft í skjólinu sem einkennist af virðingu og leikgleði“, segir Rut Hellenar, forstöðukona Skólaskjóls Grunnskóla Seltjarnarness – Mýrarhúsaskóla eða „Skjólsins“ sem er dagvist fyrir nemendur í 1. - 4. bekk eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur.  „Markmiðið með öllu starfi í Skjólinu er að skapa þroskavænlegt umhverfi og öruggt skjól með gleði og vellíðan allra að leiðarljósi. Í Skjólinu er lögð áhersla á að gefa börnunum möguleika á að þroskast gegnum leik og starf“, segir Rut.

Starfsemi  Skjólsins hefur tekið nokkrum breytingum í vetur, bæði þegar kemur að skipulagi og innra starfi. Tómstundafulltrúi hefur verið ráðinn í 75% starf í Skjólið, en í nóvember sl. var Sigríður Margrét Einarsdóttir ráðin til starfans. Hlutverk tómstundafulltrúa er að taka þátt í skipulagningu og stjórnun innra starfs Skjólsins.
Móttaka nemenda hefur verið færð úr aðalrými og fram í „anddyri“ Skjólsins. Þar hefur verið komið upp upplýsingatöflu sem gefur gott myndrænt yfirlit af skipulagi starfsins og hvar börnin eru hverju sinni, nokkuð sem styður eftirfylgni við hópastarf og  íþróttaæfingar og eykur öryggi.  Þessi breyting er einnig talin mjög til bóta þar sem hún auðveldar starfsfólki að stjórna „umferð“ barna í og úr Skjólinu og ferðum þeirra um skólann auk þess sem þetta fyrirkomulag skapar aukna ró í aðalleikrými Skjólsins.

Flest börnin í Skjólinu stunda íþróttir eða tónlistarnám og starfsemin hefur lagað sig að því að dvalartími þeirra sé afar mismunandi. Dagsplan Skjólsins hefur verið styrkt með aukinni fjölbreytni í valtilboði nemenda  og með breyttu skipulagi hefur Skjólið  verið gert að meira aðlaðandi kosti fyrir börnin. Fyrir framlag frá foreldrafélagi  skólans hafa leikföng og spil verið endurnýjuð. Seltjarnarnesbær hefur jafnframt aukið framlag sitt til efniskaupa og búnaðar og hafa m.a. verið keypt húsgögn til að bæta aðstöðuna. 

Vistunartími er sveigjanlegur allt frá 1. klst. á viku, en  Skólaskjólið er opið frá kl. 13:20-17:15 alla virka daga.

Rut Hellenar og Sigríður Margrét Einarsdóttir

Á myndinni eru þær Rut Hellenar, forstöðukona Skólaskjóls Grunnskóla Seltjarnarness – Mýrarhúsaskóla eða „Skjólsins“ ásamt  Sigríði Margréti Einarsdóttur nýráðnum tómstundafulltrúa Skjólsins. 

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?