Fara í efni

Opinn íbúafundur miðvikudaginn 26. febrúar kl. 19.30 í Félagsheimilinu um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Seltjarnarnesbæjar 

Haraldur L. Haraldsson, hagfræðingur og skýrsluhöfundur mun fara kynna og fara yfir helstu niðurstöður nýrrar skýrslu um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Seltjarnarnesbæjar.

Úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Seltjarnarnesbæjar

Skýrsla um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Seltjarnarnesbæjar var lögð fram og tekin til umfjöllunar í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar 20. febrúar sl. Skýrslan er unnin af Haraldi L. Haraldssyni hagfræðingi (HLH ehf.). Við vinnslu skýrslunnar var stuðst við gögn frá sveitarfélaginu og til samanburðar voru skoðuð gögn varðandi rekstur sambærilegra sveitarfélaga. Úttektin byggir meðal annars á viðtölum við stjórnendur og forstöðumenn einstakra málaflokka á sviðum bæjarins. Auk greiningarinnar á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum eru lagðar fram tillögur til úrbóta í skýrslunni.

Í bókun bæjarstjórnar um úttektina segir: ,,Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar lýsir ánægju með framkomna skýrslu sem staðfestir traustan rekstur bæjarfélagsins þar sem starfsmenn leggja sig fram af metnaði og með fagmennsku að leiðarljósi við að veita bæjarbúum góða þjónustu. Í skýrslunni felast jafnframt tækifæri til að gera enn betur með það að markmiði að fylgja eftir tillögum og ábendingum til að bæta rekstur, fjárhag og þjónustu bæjarins.“

Aðgerðaráætlun um tillögur og ábendingar til úrbóta

Í skýrslunni eru lagðar fram 66 tillögur ásamt ábendingum um það sem sérstaklega er vert að skoða í stjórnsýslu, rekstri og fjármálum bæjarins. Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti á fundi sínum þann 20. febrúar sl. að fela bæjarstjóra að vinna aðgerðaráætlun um framgang einstakra tillagna og fylgja eftir ábendingum sem koma fram í skýrslunni. Aðgerðaráætlun verður lögð fram í bæjarráði Seltjarnarnesbæjar innan 2ja mánaða og stöðumat eftir sex mánuði.

Ítarleg greining á rekstri og fjármálum

Í greiningunni hefur íbúaþróun verið skoðuð, farið var í greiningu á skuldum, veltu- og handbæru fé frá rekstri. Einnig hefur verið skoðað hvernig ársreikningur hefur komið út í samanburði við fjárhagsáætlun. Rekstrarafkoma, laun og önnur rekstrarútgjöld hafa verið greind og einnig er þar að finna greiningu á tekjum sveitarfélagsins, samsetningu tekna o.fl. Í úttektinni er farið yfir hvernig fjöldi stöðugilda hefur þróast síðustu ár í samanburði við önnur sveitarfélög af svipaðri stærð.

Kynning á skýrslunni – íbúafundur 26. febrúar kl. 19:30

Miðvikudaginn 26. febrúar kl. 19:30 verður haldinn opinn íbúafundur í Félagsheimilinu, þar sem skýrslan verður kynnt og mun Haraldur L. Haraldsson, hagfræðingur og skýrsluhöfundur, yfir helstu niðurstöður hennar.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?