Frábær þátttaka var á Menningarhátíð Seltjarnarness 2015 sem haldin var dagana 15. - 18. október og góður rómur gerður að metnaðarfullri dagskrá sem spannaði allt frá innhverfri morgunhugleiðslu að mögnuðum stórtónleikum.

Fullt var út úr dyrum á vel flesta viðburði og sýningar voru allar mjög vel sóttar.
Vart þarf að rekja dagskránna fyrir bæjarbúum en gott er að minna á að sýningin Taktur í 100 ár stendur enn þá yfir í Gallerí Gróttu og einnig sýning í Bókasafninu á verkum nemenda úr Valhúsaskóla, sem unnin var út frá kvenfrelsisbaráttunni. Seltirningum og öðrum sem þátt tóku í hátíðinni er þökkuð sú alúð sem þeir lögðu í hana og gestum þakkað fyrir að njóta hennar með okkur til fulls.
Myndirnar tala sínu máli en hér getur að líta brot af þeim viðburðum sem í boði voru. Síðar verður gefin út samantekt með völdum myndum af hátíðinni sem birt verður á heimasíðunni.