Fara í efni

Krían komin á Bakkatjörn 

Samkvæmt frétt Morgunblaðsins sást til fyrstu kríanna um helgina á Seltjarnarnesi en þar segir: Á bilinu 100-200 kríur höfðu gert sig heimakomnar á og við Bakkatjörn sem er vel þekkt fyrir iðandi fuglalíf og var friðuð árið 2000.
KríaSamkvæmt frétt Morgunblaðsins sást til fyrstu kríanna um helgina á Seltjarnarnesi en þar segir:  Á bilinu 100-200 kríur höfðu gert sig heimakomnar á og við Bakkatjörn sem er vel þekkt fyrir iðandi fuglalíf og var friðuð árið 2000.

 Í hugum margra eru kríurnar táknmynd sumarsins en í hugum golfara á Seltjarnarnesi þýðir það að nú styttist í að friðurinn sé úti. Er varplendi þeirra á Nesvelli vel þekkt á meðal golfara en kríurnar verpa frá maí fram í júlí. Hefur margur golfarinn komist í hann krappan við það að freistast til þess að slá bolta úr torfæru undir árásum kría á Nesvelli.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?