Fara í efni

KPMG: "Hugbúnaðaruppfærsla veldur öryggisrofi í Opnu bókhaldi" 

Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri harmar mjög að viðkvæmar upplýsingar hafi orðið aðgengilegar á vefsvæði Opins bókhalds Seltjarnarnesbæjar en þakkar um leið fyrir ábendinguna sem varpaði ljósi á kerfisgallann. Vefsvæðinu var þegar í stað lokað og forgangsverkefni að rannsaka málið. Meðfylgjandi er tilkynning frá KPMG:

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum barst Seltjarnarnesbæ ábending, seinni part föstudags, þess efnis að hægt væri að skoða viðkvæmar upplýsingar í Opnu bókhaldi bæjarins á vefnum, eitthvað sem átti ekki að vera hægt. Brugðist var við þegar í stað, aðangi að Opnu bókhaldi lokað og sett í forgang að KPMG samstarfsaðili bæjarins í þessum efnum rannsaki málið ofan í kjölinn. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri harmar mjög að þessi staða hafi komið upp en þakkar um leið fyrir ábendinguna sem varpaði ljósi á kerfisgallann. Ekki bara hjá Seltjarnarnesbæ heldur einnig hjá amk tveimur öðrum sveitarfélögum sem nýta sömu veflausn við hýsingu á Opnu bókhaldi sveitarfélaganna.

Tilkynning frá KPMG:

Opið bókhald gerir sveitarfélögunum kleift að birta opið bókhald bæjarfélagsins á myndrænum og gagnvirkum mælaborðum á heimasíðu sveitarfélaga. Tilgangur með lausninni er að veita íbúum, fjölmiðlum og öðrum sem láta sig rekstur sveitarfélaga varða aukin og einfaldari aðgang að rekstrarupplýsingum í anda opins lýðræðis og gagnsæis hins opinbera.

Mælaborðunum er skipti í tvo hluta; annars vegar gjaldahluta og hins vegar tekjuhluta. Tekjur eru brotnar niður á málaflokka, þjónustuþætti og einstaka tekjuliði. Niðurbrot gjalda er sambærilegt en þar er hægt að skoða niðurbrot allt niður á einstaka birgja sveitarfélaga.

Við uppbyggingu og upplýsingagjöf í Opnu bókhaldi hafa sérstakar ráðstafanir verið gerðar til að koma í veg fyrir að viðkvæmar upplýsingar séu birtar á vefnum. Ekki er um lifandi gagnatengingu við fjárhagsbókhald að ræða heldur eru gögn uppfærð handvirkt og birt eftir ítarlega yfirferð. Með  nýlegri uppfærslum á skýjaumhverfi Microsoft þar sem undirliggjandi Power BI kerfi er vistað opnaðist fyrir þann möguleika að skoða einstakar færslur í lánadrottnabókhaldi. Hvað og hversu mikið kemur fram í færslutexta er háð verklagi einstakra sveitarfélaga.

Þessi möguleiki er ekki augljós almennum notendum og krefst tæknilegrar þekkingar til að virkja og þannig voru þessar viðkvæmu upplýsingar ekki auðveldlega aðgengilegar.  Ítarlegt prófunarferli var undanfari birtingar en prófun gangvart þessum möguleika var ekki framkvæmanleg þar sem mælaborð voru birt fyrir breytingu á þessar virkni hjá Microsoft.  

Brugðist hefur verið við þessu þannig að undirliggjandi upplýsingar eru ekki lengur aðgengilegar en jafnframt hefur mælaborðum fyrir Opið bókhald sveitarfélaga verið lokað tímabundið meðan farið er yfir verklag til að gæta fyllsta öryggis varðandi þau gögn og upplýsingar sem birt verða framvegis.

Benedikt K. Magnússon

Sviðsstjóri ráðgjafasviðs KPMG

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?