Fara í efni

Kaldur pottur verður ný viðbót við aðstöðuna í sundlauginni

Góð viðbót við aðstöðuna í sundlauginni væntanleg en undanfarin misseri hefur hönnunarvinna á köldum potti farið fram. Haukur í sundlauginni og Margrét Leifsdóttir arkitekt hófu samstarf um útlit og nýtingarmöguleika á köldum potti og að sögn Hauks var fyrirmyndin frá NLFÍ í Hveragerði, svokölluð skiptiböð.  Þar er gengið niður í heitt og upp hinu megin niður í kalt.

Kaldi potturinnGóð viðbót við aðstöðuna í sundlauginni væntanleg en undanfarin misseri hefur hönnunarvinna á köldum potti farið fram. Haukur í sundlauginni og Margrét Leifsdóttir arkitekt hófu samstarf um útlit og nýtingarmöguleika á köldum potti og að sögn Hauks var fyrirmyndin frá NLFÍ í Hveragerði, svokölluð skiptiböð.  Þar er gengið niður í heitt og upp hinu megin niður í kalt.

Hér á Seltjarnarnesi var hins vegar tekin ákvörðun um að staðsetja pottinn á milli nuddpottsins og eimbaðsins og því ekki talið nauðsynlegt að hafa heita kerið einnig.  Hjá okkur verður það því þannig að þegar farið er úr kalda kerinu getur fólk valið um að fara annað hvort í nuddpottinn eða eimbaðið ef það kýs hita á eftir.

Kaldi potturinnÁætlað er að kaldi potturinn verði tilbúinn þann 1. júlí nk. en um framkvæmdina hefur Jóhannes Benjamínsson húsasmiðameistari séð ásamt vösku liði frá þjónustumiðstöðinni.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?