Fara í efni

Jónsmessuhátíð á Seltjarnarnesi 24. júní kl. 19.30

Allir velkomnir í árlega Jónsmessugöngu mánudaginn 24. júní sem byrjar kl 19.30 við hákarlahjallinn við Norðurströnd. Genginn verður þægilegur hringur um náttúruperluna okkar í suðurnesjunum og stoppað á áhugaverðum stöðum undir leiðsögn.

Jónsmessuganga 2019Jónsmessuganga og gleði mánudaginn 24. júní kl. 19.30

Við höldum í hefðir og hvetjum bæjarbúa til að taka þátt í Jónsmessugleði á Seltjarnarnesinu okkar fallega! Genginn verður þægilegur hringur um náttúruperluna okkar í suðurnesjunum og stoppað á áhugaverðum stöðum þar sem hægt verður að njóta útsýnis í bland við fróðleik.

Hákarlahjallur

Kl. 19.30 verður safnast saman hjá Sigga í Hákarlaskúrnum við Norðurströnd sem býður gestum bæði að reka inn nefið og upp á hákarl og brennivín áður en lagt verður af stað kl. 20.00.

Fiskitrönur og lögguhlið

Á göngunni verður stoppað við fiskitrönurnar og lögguhliðið sem hafa verið endurbætt en Guðmundur Jón Helgason (Jóndi) segir okkur sögu þeirra og frá fleiri markverðum stöðum á leiðinni auk þess að sýna hvar æskuheimili hans hinn sögufrægi Nýibær stóð.

Nesstofa

Haldið verður sem leið liggur að Nesstofu þar sem að hjónin Haraldur Jóhannsson (Halli í Nesi) og Fjóla G. Friðriksdóttir segja m.a. frá tíma sínum þar en Halli ólst upp í Nesstofu og þar byrjuðu þau hjónin að búa auk þess sem Ólöf, móðir Haraldar var síðasti ábúandinn í Nesstofu.

Seltjörn hjúkrunarheimili

Jónsmessugangan endar á nýja og fallega torginu við hjúkrunarheimilið Seltjörn þar sem að boðið verður upp á veitingar frá hitaveitunni og Bjarki Harðarson mun spila skemmtileg lög á harmonikkuna sem allir geta sungið við.

Göngugestum býðst ennfremur að skoða dagdvöl hjúkrunarheimilisins og ætlar Kristján Sigurðsson stjórnandi hjúkrunarheimilisins að segja frá því hvernig gengur. Toppurinn er svo ganga upp á þakið þar sem hægt er að njóta útsýnis í allar áttir.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Jónsmessuganga 2019


 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?