Fara í efni

Ísland endurmælt með upphafspunkt á Valhúsahæð

Eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins miðvikudaginn 1. júní, stendur til á næstu mánuðum að endurmæla og –reikna alla punkta í grunnstöðvaneti landmælinga á Íslandi. 
Valhúsahæð

Eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins miðvikudaginn 1. júní, stendur til á næstu mánuðum að endurmæla og –reikna alla punkta í grunnstöðvaneti landmælinga á Íslandi. 


Verkefninu var formlega ýtt úr vör í gær þegar mælitæki var sett af stað á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi, en frá árinu 1904 hefur þar verið einn af grunnpunktum í mælikerfi landsins. 

Eftir nokkra daga ættu að vera komnar niðurstöður úr þessari einstöku mælingu, segir í blaðinu. Umræddur grunnpunktur, sem fjallað er um, er svokallaður Landamerkjasteinn með áletruninni LANDAMERKI. 

Steinninn var skráður í fornleifaskráningu árið 1980, en líklegt má telja að steinninn hafi átt að marka land á milli norðan- og sunnanverðs Ness

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?