Inntaka barna í Leikskóla Seltjarnarness frá næsta hausti er nú vel á veg komin. Ljóst er að hún verður með svipuðum hætti og undanfarin ár
Inntaka barna í Leikskóla Seltjarnarness frá næsta hausti er nú vel á veg komin. Ljóst er að hún verður með svipuðum hætti og undanfarin ár.
Í annarri umferð úthlutunar verður börnum sem fædd eru í febrúar til og með maí 2016 boðin leikskóladvöl.
Foreldrar barna í þessum hópi, sem sótt hafa um pláss fyrir 1. apríl sl., fá sent tilboð um leikskólapláss nú í dymbilvikunni. Öllum börnum sem voru á biðlista fædd árin 2012-2015 hefur þegar verið boðið pláss auk elstu barnanna í 2016-árganginum.