Fara í efni

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ opnuð eftir gagngerar breytingar

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er nú flutt tilbaka á Suðurströnd 12 eftir að hafa verið starfrækt í rúmlega eitt ár á Landakoti á meðan gagngerar endurbætur fóru fram á húsnæði stöðvarinnar.
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er nú flutt tilbaka á Suðurströnd 12 eftir að hafa verið starfrækt í rúmlega eitt ár á Landakoti á meðan gagngerar endurbætur fóru fram á húsnæði stöðvarinnar. Flutningi stöðvarinnar var fagnað í móttöku sem haldin var í gær, fimmtudaginn 28. janúar í endurbættu húsnæði á Suðurströnd.  Við það tækifæri færðu Lionsfélagar á Seltjarnarnesi stöðinni veglegt fjárframlag til tækjakaupa.

Heilsugæsla Seltjarnarness
Starfsemi Heilsugæslu Seltjarnarness og Vesturbæjar er nú aftur tekin til starfa í nýuppgerðu húsnæði stöðvarinnar á Suðurströnd 12 á Seltjarnarnesi eftir rúmlega eins árs rekstur í bráðabirgðahúsnæði á Landakoti.

Fyrsta sérhannaða heilsugæslustöðin
Húsnæði heilsugæslu Seltjarnarness og Vesturbæjar er rúmir 1.000 fermetrar að stærð. Það er hannað af Jes Einari Þorsteinssyni, arkitekt og er fyrsta húsið sem var sérhannað fyrir heilsugæslu í landinum. Eftir rúmlega 30 ára starfsemi í húsinu var kominn tími á endurbætur, að utan jafnt sem innan. Fyrir nokkrum árum var ráðist í viðamiklar utanhússviðgerðir og var strax ljóst að ekki yrði farið í endurbætur innanhúss öðru vísi en að færa starfsemina annað á meðan. Auk umfangsmikils viðhalds og endurbóta var brýnt að bæta vinnuaðstæður starfsfólks og aðstöðu fyrir heilsuverndarstarfið. Meðal endurbóta sem nú var ráðist í má nefna að lagnakerfi hússins voru endurnýjuð og innréttingar lagfærðar eða endurnýjaðar. Gerðar voru breytingar á innra skipulagi þannig að húsið henti betur starfseminni og mæti þörfum nútíma heilbrigðisþjónustu.

Í móttökunni í gær sagði Svanhvít Jakobsdóttir forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að haft hefði verið samráð við starfsfólk um fyrirkomulag endurbótanna og að markmiðið hefði verið að skapa starfsfólki og skjólstæðingum stöðvarinnar umgjörð og aðstæður þar sem öllum liði vel í hvort sem um væri að ræða stuttar heimsóknir eða langan vinnudag.  „Afrakstur þessa samstarfs er falleg og björt heilsugæslustöð, þar sem tekist hefur að bæta starfsaðstæður og skapa umhverfi sem tekur vel á móti skjólstæðingum heilsugæslunnar. Af þessu getum við verið stolt,“ sagði Svanhvít. 

Árni Scheving Thorsteinsson, Emilía Jóhannsdóttir, Kristján Þór Júlíusson og Svanhvít Jakobsdóttir
Frá opnunarathöfn nýendurgerðrar heilsugæslustöðvar Seltjarnarness og Vesturbæjar. í dag. Frá vinstri: Árni Scheving Thorsteinsson yfirlæknir, Emilía P. Jóhannsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur, Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Svanhvít Jakobsdóttir forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

16 þúsund íbúa þjónustusvæði
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er hverfisstöð sem þjónar tæplega 16.000 Seltirningum og Vesturbæingum. Svæði stöðvarinnar nær yfir Seltjarnarnes og Vesturbæ Reykjavíkur sunnan Hringbrautar, þ.m.t. er allt háskólahverfið og Skerjafjörður. Að auki veitir stöðin 5 grunnskólum á svæðinu heilsugæsluþjónustu. Arkitektastofan Ask sá um hönnun breytinganna og var verkfræðihönnun unnin í samvinnu við VSÓ Ráðgjöf. Framkvæmdasýslan hafði umsjón með framkvæmdum og daglegt eftirlit fyrir Ríkiseignir sem héldu utan um verkið.  Aðalverktaki endurbótanna var Þarfaþing hf.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?