ÍTS og aðildarfélög tengd heilsu og hreyfingu á Seltjarnarnesi bjóða bæjarbúum til heilsudaga 7. - 10. maí næstkomandi. Fjölbreytt dagskrá verður í boði þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Allir velkomnir og frítt á alla viðburði*
ÍTS og aðildarfélög tengd heilsu og hreyfingu á Seltjarnarnesi bjóða bæjarbúum til heilsudaga 7. - 10. maí næstkomandi. Fjölbreytt dagskrá verður í boði þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Allir velkomnir og frítt á alla viðburði*
Dagskrá Heilsudaga
Fimmtudagur
- Kl. 07:10 Sundleikfimi í Sundlauginni. Kennari Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir.
- Kl. 10:00 Mæðrafimi í Hreyfilandi, Eiðistorgi 17. Kennari Krisztina Agueda. Líkamsrækt og léttar æfingar fyrir verðandi mæður og nýbakaðar mæður með ungabörn. Léttar og hollar veitingar í boði eftir tímann.
- Kl. 14-17 Opið hús hjá Nýjalandi, Eiðistorgi. Stefanía Ólafsdóttir, græðari, býður upp á kynningartíma í Höfuðbeina-og spjaldhryggsjöfnun. 25% afsláttur af öllu sem Nýjaland býður upp á, á meðan að heilsudögum stendur.
- Kl 16:30 – 17:30 Hjálmastilling. Þaulreyndir félagar úr slysavarnardeildinni Vörðunni bjóða upp á hjálmastillingu á planinu við Sundlaugina.
- Kl. 17:00-17:45 Gþ-fimi hjá Hreyfilandi. Hreyfing og æfingar fyrir 3 -6 ára börn.
- Kl. 17:30 Hjólaæfing/Samhjól á vegum TKS undir stjórn Bjarna Torfa Álfþórssonar. Lagt af stað frá Sundlauginni. Hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum.
- Kl. 18:00-19:00 Fjölskylduferð út í Snoppu á hvers kyns dekkjum sem jafnfljótum. Reiðhjól, línuskautar, barnavagnar, allir velkomnir! Haldið verður af stað frá Hreyfilandi.
- Knattspyrnudeild og handboltadeild Gróttu bjóða öllum börnum að mæta á æfingar 7. og 8. maí. Skráning er óþörf, bara að mæta.
Föstudagur
- Kl. 10:00-10:45 Snillingafimi fyrir börn 3-8 mánaða í Hreyfilandi. Kenndar eru léttar æfingar sem auka þroska ungbarna. Kennari Krisztina Agueda.
- Kl. 11:00-11:45 Snillingafimi fyrir börn 8-12 mánaða í Hreyfilandi. Kenndar eru léttar æfingar sem auka þroska ungbarna. Kennari er Krisztina Agueda.
- Kl. 14:00-17:00 Opið hús hjá Ballettskóla Guðbjargar, Eiðistorgi.
- Kl. 14-17 Opið hús hjá Nýjalandi, Eiðistorgi. Stefanía Ólafsdóttir, græðari, býður upp á kynningartíma í Höfuðbeina-og spjaldhryggsjöfnun. 25% afsláttur af öllu sem Nýjaland býður upp á, á meðan að heilsudögum stendur.
- Kl. 16:00 Ballettkennslutími og danssýning hjá Ballettskóla Guðbjargar.
- Kl. 16:30 Fyrirlestur um hlaup og starfsemi TKS í hátíðarsal Gróttu. Fyrirlesari Rakel Eva Sævarsdóttir.
- Kl. 17:00 Sundleikfimi í Sundlauginni. Kennari Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir.
- Kl. 17:00-18:00 FitKid-kynningartími hjá Hreyfilandi. Þol, styrkur og dans fyrir 6-16 ára börn.
- Kl. 17:00 Óskastund – Hugleiðsla hjá Nýjalandi.
- Kl. 17:30 Blakdeild Gróttu býður byrjendum jafnt sem lengra komnum á æfingu í íþróttahúsinu.
- Kl. 19:00 Fimleikadeild Gróttu býður alla velkomna á fullorðinsfimleikaæfingu í íþróttahúsinu.
Laugardagur
- Kl. 9:00-10:00 Hreyfifimi fyrir 1-2 ára börn hjá Hreyfilandi. Kennari Krisztina Agueda.
- Kl. 11:00 Neshlaupið. Forskráning á www.hlaup.is til 8. maí. Skráning og mótsgögn á hlaupadegi í íþróttahúsinu frá kl. 10:00 – 11:30. Börn og unglingar sérstaklega hvött til að taka þátt.
- Opið hús og frítt í alla tíma hjá World Class Seltjarnarnesi.
- Opið hús í Sundlauginni. Frítt fyrir alla í sund.
Sunnudagur
- Kl. 9:00 Systrasamlagið og Float býður Samflot í Sundlauginni.
- Samflot er vettvangur fyrir fólk að koma saman og upplifa nærandi slökunarstund í þyngdarleysi umvafin vatninu. Flotbúnaður verður boðinn til láns og allir velkomnir.
*16 ára og eldri greiða 1.500 kr. skráningargjald í Neshlaupið. Frítt fyrir börn yngri en 16 ára.
Allar frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðum aðildarfélaga Heilsudaga.
http://www.landsbjorg.is/vardan