Fara í efni

Grótta Íslandsmeistari í fyrsta sinn

Allt gekk upp á lokamínútunum hjá handknattleiksdeild Gróttu, sem varð í gærkvöldi Íslandsmeistari kvenna í handknattleik eftir sigur á Stjörnunni 24-23 í Mýrinni í Garðabæ
Allt gekk upp á lokamínútunum hjá handknattleiksdeild Gróttu, sem varð í gærkvöldi Íslandsmeistari kvenna í handknattleik eftir sigur á Stjörnunni 24-23 í Mýrinni í Garðabæ í fjórða leik liðanna í úrslitunum. Grótta vann þar með einvígið 3-1 og landaði þar með fyrsta Íslandsmeistaratitli félagsins í hópíþrótt frá upphafi.

Stjörnukonur náðu fljótt forystunni í leiknum og komust mest fimm mörkum yfir í fyrri hálfleik en leiddu með þremur mörkum að honum loknum 13-10.

Stjarnan náði aftur fimm marka forystu í upphafi síðari hálfleiksins en Grótta át smátt og smátt upp forskot heimakvenna og jafnaði 23-23 þegar þrjár mínútur lifðu leiks. Lokamínúturnar voru æsispennandi og fór svo að hin 15 ára Lovísa Thompson skoraði fyrir Gróttu þremur sekúndum fyrir leikslok og tryggði liðinu sigur 24-23 og þar með Íslandsmeistaratitilinn.

Lovísa skoraði fjögur mörk fyrir Gróttu líkt og Eva Björk Davídsdóttir en Anna Úrsúla Guðmundsdóttir gerði sjö mörk. Grótta er þar með þrefaldur meistari en varð einnig deildar- og bikarmeistari.

Íslandsmeistarar Gróttu
Íslandsmeistarar 2015
Íslandsmeistarar 2015
Íslandsmeistarar 2015





Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?