Fara í efni

Góð lýðheilsa ungs fólks á Seltjarnarnesi 

Á dögunum kynnti Jón Sigfússon framkvæmdarstjóri Rannsóknar og greiningar niðurstöður sínar á rannsókn um lýðheilsu nemenda í 8., 9. og 10. bekk á Seltjarnarnesi sem gerð var í mars 2016.
Ungt fólkÁ dögunum kynnti Jón Sigfússon framkvæmdarstjóri Rannsóknar og greiningar niðurstöður sínar á rannsókn um lýðheilsu nemenda í 8., 9. og 10. bekk á Seltjarnarnesi sem gerð var í mars 2016. 

Kynningin fór fram á fundi Samráðshóps um áfengis- og vímuvarnir í hátíðarsal Gróttu, en samskonar könnun var gerð meðal sama aldurshóps um allt land.

Í niðurstöðum kom fram að áfengis- og vímuefnaneysla ungmenna á Seltjarnarnesi er óveruleg líkt og undanfarin ár. Aðrar niðurstöður sem vöktu athygli á landsvísu er hversu samvera barna á Seltjarnarnesi með foreldrum er mikil og einnig að þunglyndi og kvíði eru nánast óþekkt. Iðkun íþrótta, á meðal aldurshópsins sem spurður var, er meiri á Seltjarnarnesi samanborði við iðkun annarra ungmenna á landinu. 

Grunnskóli Seltjarnarness fær rós í hnappagatið fyrir framúrskarandi starf í könnuninni, en nemendur þar segjast allir vera ánægðir og enginn vill hætta í skólanum. 
Nánari upplýsingar um skýrsluna veitir forvarnarfulltrúi bæjarins Sigrún Hv. Magnúsdóttir í síma 595 9132,


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?