Fara í efni

Góð gjöf til Leikskóla Seltjarnarness

Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur til 30 ára kom færandi hendi á bæjarskrifstofur Seltjarnarness á dögunum þegar hún gaf Leikskóla Seltjarnarness námsefnið Leikum og lærum með hljóðin.

Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur kom færandi hendi á bæjarskrifstofur Seltjarnarness á dögunum þegar hún gaf Leikskóla Seltjarnarness námsefnið Leikum og lærum með hljóðin. Námsefnið byggir á fagþekkingu talmeinafræðinnar, rannsóknum og reynslu Bryndísar af því að vinna með börnum, foreldrum og fagfólki skóla. Efnið er til þjálfunar sem bætir framburð barna, eykur orðaforða og undirbýr læsi hefur hlotið ýmsar viðurkenningar.

Góð gjöf til Leikskóla Seltjarnarness


Bryndís hefur starfað á Íslandi í rúmlega 30 ár sem talmeinafræðingur og hefur meðal annars gefið út námsefni undir heitinu Lærum og leikum með hljóðin, sem ætlað er barnafjölskyldum og skólum. Í tilefni af þessum tímamótum í starfi ákvað hún að gefa heildstætt efni úr Lærum og leikum með hljóðin  til allra leikskóla á Íslandi, en eigið framlag Bryndísar og fjölskyldu ásamt samstarfi við Marel, Lýsi, IKEA, hjónin Björgólf Thor og Kristínu Ólafsdóttur og Raddlist hafa gert það mögulegt.

Hver starfsstöð Leikskóla Seltjarnarness fær tösku sem innheldur heildstætt efni úr Lærum og leikum með hljóðin til að nýta í starfi sínu með leikskólabörnum. Þar má einnig finna aukaefni eins og púsl, límmiða og vinnusvuntur sem styðja við hljóðanámið með fallegum stafamyndum. Einnig munu fimm íslensk smáforrit fyrir iPad vera gefin samhliða til allra starfsstöðva leikskólans.

Góð gjöf til Leikskóla Seltjarnarness 2


Í kynningu með efninu segir að það sé mikilvægt að leggja grunn að læsi frá unga aldri með áherslu á þá þætti sem rannsóknir sýna að skipta meginmáli fyrir framtíðarnám barna. Lærum og leikum með hljóðin kennir framburð hljóða, hljóðavitund og bókstafi, þjálfar hljóðkerfisþætti, eykur orðaforða og hugtakaskilning, auk þess að gefa fyrirmynd að setningagerð og mörgum málfræðiþáttum íslenskunnar. Bryndís mun svo fylgja efninu eftir með vefnámskeiðum.

Seltjarnarnesbær kann Bryndísi bestu þakkir fyrir þessa veglegu gjöf sem mun án nokkurs vafa koma börnum á Seltjarnarnesi afar vel.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?