Félagsþjónustusvið Seltjarnarness var á dögunum valin Fyrirmyndarstofnun ársins 2019 í flokknum Stofnun ársins borg og bær 2019
Félagsþjónustusvið Seltjarnarness var á dögunum valin Fyrirmyndarstofnun ársins 2019 í flokknum Stofnun ársins borg og bær 2019 í könnun sem Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu stendur fyrir og voru niðurstöður kynntar á Hilton hótel Nordica að viðstöddu fjölmenni fyrr í gær.
Könnun meðal félagsmanna er unnin í samstarfi Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og VR, sem mun kynna niðurstöður sínar síðar. Gallup sér um framkvæmd könnunarinnar sem er stærsta reglulega vinnumarkaðskönnun sem framkvæmd er hér á landi og var úrtakið tæplega 50.000 manns.