Að gefnu tilefni vill Seltjarnarnesbær koma því á framfæri að bæjarfélagið á 15 félagslegar leiguíbúðir sem leigðar eru fólki með bágan fjárhag og erfiðar félagslegar aðstæður.

Af þessum 15 leiguíbúðum eru 5 íbúðir ætlaðar fólki með fötlun sem þarf sértæka búsetuþjónustu og 5 eru í fjölbýlishúsum fyrir eldra fólk (ellilífeyrisþega). Á biðlista eftir félagslegum íbúðum eru 5 aðilar.