Laugardaginn 12. ágúst hlaut íþróttakonan Fanney Hauksdóttir silfur á Evrópumótinu í klassískri bekkpressu í 63 kg flokki kvenna. Í leiðinni setti hún nýtt Íslandsmet.
Laugardaginn 12. ágúst hlaut íþróttakonan Fanney Hauksdóttir silfur á Evrópumótinu í klassískri bekkpressu í 63 kg flokki kvenna. Í leiðinni setti hún nýtt Íslandsmet.
Í fyrstu tilraun lyfti Fanney 110 kg auðveldlega upp. Í annari tilraun gerði hún sér lítið fyrir og lyfti 112,5 kg og bætti í leiðinni eigið Íslandsmet. Fanney gerði svo tilraun til að ná gullinu af Zsanett Palagyi en hún hafði einnig lyft 112,5 kg á minni líkamsþyngd. Fanney reyndi því við 115 kg en það var of þungt og silfur á EM því staðreynd. 112,5 kg lyftu Fanneyjar má sjá í spilaranum hér: http://www.ruv.is/frett/fanney-hauksdottir-med-silfur-a-em