Fara í efni

Erlend sendinefnd skoðar Hitaveitu Seltjarnarness

Í gær, þriðjudaginn 16. febrúar, tók bæjarstjóri Seltjarnarness, Ásgerður Halldórsdóttir, á móti sendinefnd frá Brussel sem var hingað komin á vegum utanríkisráðuneytisins

Í gær, þriðjudaginn 16. febrúar, tók bæjarstjóri Seltjarnarness, Ásgerður Halldórsdóttir, á móti sendinefnd frá Brussel sem var hingað komin á vegum utanríkisráðuneytisins. 


Erindi nefndarinnar var að skoða hitaveitu Seltjarnarnesbæjar og fræðast um uppbyggingu hennar og starfsemi. Nefndin kom hingað til lands í tengslum við aðkomu Íslands að Uppbyggingarsjóði EES þar sem Íslendingar styrkja jarðhitaveitur í Rúmeníu og Ungverjalandi. 

Í hópnum voru m.a. Stefán Lárus Stefánsson og Unnur Orradóttir Ramette sendiherrar,  Þóra Magnúsdóttir, sem situr í stjórn sjóðsins fyrir hönd Íslands, auk starfsmanna Orkustofnunar og starfsmanna Seltjarnarnesbæjar. 

Sendinefnd frá Brussel ásamt starfsmönnum Orkustofnunar og Seltjarnarnesbæjar

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?